Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu. Athugasemdir þeirra birtast strax og ekki þarf að staðfesta uppgefið netfang.

Gestir:

Vel gert!

Þú gerðir vel þegar þú svaraðir fréttamanni útv. Sögu í morgun. Einhver hefði glott og hæðst að þessum misvitra fréttamanni, ekki þú. Gangi þér allt í haginn eins og hingað til. Kær kveðja, Elín Oddgeirs

Elín Oddgeirsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 12. apr. 2010

Þóra Sigurðardóttir

Krístin min... leitt að það skuli ekki vera hægt að blogga

Krístin min... leitt að það skuli ekki vera hægt að blogga hjá þér við síðustu færslu. Þú ert semsagt komin á 603 Akureyri eins ég 109 Reykjavík. Bæði góður og slæmur kostur. En svona er lífið skrítið í laginu.

Þóra Sigurðardóttir, sun. 30. des. 2007

Valgerður Halldórsdóttir

Gleðileg jól

og bara aftur Gleðileg jól

Valgerður Halldórsdóttir, sun. 23. des. 2007

Anna Ólafsdóttir Björnsson

Gangi þér vel í góðu hlutverki fyrir norðan!

Heil og sæl, takk fyrir síðast, þetta var bráðskemmtileg ferð. Gaman að frétta að allt fór á besta veg varðandi nýja hlutverkið þitt í tilverunni. Gangi þér allt í haginn, Anna Björnsson

Anna Ólafsdóttir Björnsson, þri. 20. nóv. 2007

Björg C Þorláksdóttir

Sæl Kristín. Ágætur samstarfsmaður minn benti mér á að tala við þig varðandi ritgerð sem ég er að vinna að fyrir íslenskuáfanga í FG, ritgerðin fjallar um Björgu C. Þorláksdóttur. Ef þú telur þig geta frætt mig eitthvað um þessa konu þá máttu endilega láta mig vita og ég myndi þá kannski fá að hringja í þig við tækifæri. M. kveðju, Sigrún Einars, sigruneinars@yahoo.com

Sigrún Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 4. okt. 2007

Lyngdalsheiðin

Sæl, ég les bloggið þitt stundum og brá þegar ég sá að þú hossaðist yfir Lyngdalsheiði því utanvegarakstur er bannaður og vegurinn liggur yfir Gjábakka eins og fram hefur komið í athsemdum. Mér finnst leiðin svo falleg að ég læt ekki slæman veg trufla mig, nýt þess að aka þessa leið í báðar áttir. Kveðja Hjördís

hjördís Jensdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 30. júlí 2007

Kvennamessa við þvottalaugarnar í kvöld

Sæl Kristín og velkomin til baka. Sjáumst vonandi við kvennamessuna við þvottalaugarnar í kvöl kl 20:30. Kær kveðja, Elín Lóa Kristjánsdóttir

Elín Lóa Kristjánsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 19. júní 2007

Kveðja frá Nuuk

Kæra Kristín. Þú blggar dável. kv. Kristjana

Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 11. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband