10.5.2007 | 10:33
Þetta gengur ekki
Ég verð að taka mig á sem bloggari. Það líður of langt á milli pistla hjá mér. Reyndar er ástæðan annars vegar þrálátt netsambandsleysi í Hlíðunum sem ekki hefur fengist skýring á, hins vegar brá ég mér af landi brott í nokkra daga og hafði engan tíma til að blogga. Ég lofa bót og betrun að því tilskyldu að ég hafi netsamband. Ég er að sjálfsögðu margbúin að hafa samband við Símann og þeir sendu mér mann sem tók úr sambandi og setti í samband aftur og tók litlar 4000 kr. fyrir. Mér þætti gaman að reikna út hvað þessi þjónusta (ha, ha ha) hefur hækkað í verði eftir að Síminn var gerður að ehf. Heimsóknin hafði engin áhrif, sambandið kemur og fer eins og því þóknast. Ég verð þá bara að skrifa í vinnunni og lofa aftur að standa mig betur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.