30.6.2007 | 14:30
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Meira um ferðina að Haukagili og heim aftur. Á leiðinni heim komum við Bríetarkonur við á heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi en þangað hef ég aldrei komið áður. Þar tók á móti okkur Elín á Torfalæk sem hér áður tilheyrði Torfalækjarhreppi þótt langt væri liðið á dag og hún ætti von á gestum í mat. Elín veitir safninu forstöðu og stendur sannarlega í ströngu við að halda því gangandi. Þar er skemmst frá að segja að safnið er svo sannarlega þess virði að heimsækja það. Eftir á að hyggja er þetta fremur hannyrðasafn en heimilisiðnaðarsafn því þarna er megináherslan á það sem unnið var með nál og þræði, prjónum eða í vefstólum.
Ég er einmitt að lesa Ungfrúna góðu og húsið eftir Halldór Laxness en þar er lýsing á afburða kunnáttu ungfrú Rannveigar í hannyrðum og nefndar til sögunnar allar þær útsaumsgerðir sem hannyrðakonur fyrri ára réðu yfir allt frá kontór- og aftursting til heðibú og harðangurs. Skemmtilega dönsk nöfn á ferð. Þá var sú góða ungfrú feiknagóð í fatasaumi þess tíma með pífum, blúndum og öðru fíniríi sem við leggjum lítið upp úr nú til dags. Á safninu gefur að líta margs konar útsaum (hvítsaum) í dúkum, sængurfatnaði og undirfötum, einkum "bloomers" (hálfsíðar nærbuxur) og kotum (blúndum prýddir toppar).
Ég er sjálf af þeirri kynslóð sem fékk töluverða handavinnukennslu, bæði hjá mömmu og svo í skólanum. Ég hafði nefnilega mjög gaman af handavinnu þótt ýmislegt það sem við stelpurnar vorum látnar gera væri svo forneskjulegt að engu tali tók. Þar má nefna prjónaða þvottapoka og útsaumaða handvinnupoka. Einhvers staðar á ég þessar gersemar í fórum mínum. Þetta var áður en jafnréttisstefnan hélt innreið sínar og stelpur fóru að læra smíðar og strákar að prjóna.
Næst lá leiðin í þjóðbúningadeildina sem er afar falleg með ýmsum gerðum kvenbúninga sem sýna þá miklu kunnáttu og listfengi sem þurfti við gerð þeirra.
Upphaf safnsins var gjöf Halldóru Bjarnadóttur heimilisiðnaðarráðunauts og ritstjóra Hlínar og því er stofa helguð henni þar sem getur að líta ýmis konar krosssaum, góbelínteppi og fleira slíkt. Halldóra varð allra kerlinga elst eða 108 ára. Ég man eftir fréttum af því þegar hún var 106 ára, þá fékk hún bréf frá Umferðarskólanum sem bauð henni á námskeið með börnunum. "Kerfið" taldi nefnilega bara upp að 100 og samkvæmt því var Halldóra sex ára.
Í öðru herbergi er að finna safn veggteppa. Í kringum Alþingishátíðina 1930 voru gefnar út teikningar af veggteppum, t.d. svokallað riddarateppi sem víða er til en gaman væri að vita hvaðan hin mynstrin sem ég hef víða séð eru komin. Þetta vita sérfræðingar í textíl- og hannyrðasögu eflaust. Ég veit að svona teppi voru til að mynda saumuð í húsmæðraskólanum á Hallormsstað í tíð Sigrúnar Blöndal skólastýru.
Ég mæli með heimsókn í heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi til að skoða listfengi kvenna og þá kvennamenningu sem þróaðist í kringum hannyrðir og heimilisprýði. Það er menning sem hefur látið mjög undan síga en hver veit hvort konur og karlar taka aftur til við að eyða tómstundum sínum í róandi og skapandi hannyrðir. Þær eru bráðskemmtilegar og afslappandi og mun betri tómstundaiðja en að glápa á innihaldslaust og hundleiðinlegt sjónvarpsefni. Um að gera að hlusta á rás1 á RÚV á meðan. Trúið mér, þótt ég sé reyndar orðin mjög löt við að sinna svo fornum kvenlegum dygðum. Kannski ég taki aftur upp nál og þráð.
Bloggar | Breytt 1.7.2007 kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.6.2007 | 20:49
Frá Vörðufelli til Vatnsdals á slóðir Bríetar
Undanfarna tvo daga gerði ég víðreist. Á miðvikudag lá leiðin austur í Biskupstungur og þótt aðeins hefði kólnað í lofti var fegurðin ólýsanleg. Fjallasýn til allra átta, nema hvað Hekla faldi topp sinn í skýjahulu. Það var þó ýmislegt sem pirraði mig á leiðinni. Línumengun Landsvirkjunar er vægast sagt óþolandi en hún blasir víða við á heiðum sem láglendi. Þá er nú umhverfi Hellisheiðarvirkjunar til lítils sóma fyrir Reykjavíkurborg. Feiknaleg rör liggja þvers og kruss um landið. Af hverju er ekki hægt að grafa þau í jörð? Mér er alveg sama hvað það kostar eða hvort þar eru einhver tæknileg vandamál á ferð. Sjónmengunin er mjög truflandi og til mikillar óprýði. Við verðum að hætta að umgangast landið með þessum hætti. Þá styttist í að Ingólfsfjalli verði mokað í burtu en sárið í fjallinu stækkar og stækkar. Hvernig stendur á því að einstaklingur getur farið svona með náttúru Íslands? Ég bara skil ekki að þetta skuli líðast.
En þegar rafmagnslínurnar miklu voru horfnar blasti fegurð sveitanna á Suðurlandi við. Það var staðarlegt að líta heim til Skálholts og víða blöstu við "bleikir akrar og slegin tún". Áfangastaðurinn var við rætur Vörðufells og þar var farangrinum komið í hús. Við stöllurnar gengum niður að Stóru-Laxá sem var hvorki stór, vatnsmikil né veiðileg enda allar ár afar vatnslitlar. Í vetur var allt á floti á þessu svæði þannig að það er nú ekki að marka þessa sólardaga. Við snæddum grillað lambafíle með bökuðum sætum kartöflum og lífrænt ræktuðu salati frá bændum í Laugarási meðan kvöldsólin skein á kyngimagnað Heklufjall og varpaði sumarbirtu yfir sveitirnar.
Um hádegi á fimmtudag þegar ég var komin í bæinn fór ég strax af stað aftur og nú norður í land á vit heimaslóða Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Enn var veður ægifagurt. Fjöll og sveitir Borgarfjarðar blöstu við í allri sinni dýrð, kjarrið grænt og safaríkt og í fjarska sáust Ok og Langjökull. Ekki tók síðra við norðan Holtavörðuheiðar. Landið var fagurt og frítt og víðsýni til allra átta þótt þar væri mun kaldara. Bílstjórinn ók á löglegum hraða og því lentum við ekki í klóm hinnar samviskusömu Blönduóslögreglu en það gerðu Kvenréttindafélagskonur í öðrum bíl. Það borgar sig ekki að aka of hratt í nágrenni Blönduóss. Glælpurinn þýddi 22.000 kr. sekt.
Við ókum sem leið lá fram hjá náttúruundrum Víðidalsins og beygðum loks inn í Vatnsdalinn en þar innarlega í dalnum fæddist Bríet Bjarnhéðinsdóttir fyrir 151 ári síðan eða nánara tiltekið að Haukagili þar sem foreldrar hennar voru vinnuhjú.
Í túnjaðri Haukagils hefur nú verið afhjúpaður minnisvarði um Bríeti og þar með er bærinn kominn á sögukortið. Þarna voru mættir sveitastjórnarmenn og nokkrir aðrir góðir gestir ásamt bóndanum að Haukagili og heimasætunum tveimur. Eftir stutta athöfn var drukkið kaffi að sveitasið og forvitnast um menn og málefni í sveitinni. Þar sögðu menn að ekki hefði komið deigur dropi úr lofti í tvo mánuði enda mátti sjá að sveitavegir voru rykugir, allar ár og lækir voru afar vatnslítil og laxveiði þar af leiðandi ekki hafin í rómuðum laxveiðiám Húnvetninga. Spurt var hver ætti nú að flytja okkur fréttir af laxveiðum þar nyrðra eftir að Grímur Gíslason fréttaritari RÚV hvarf til feðra sinna eftir áratuga þjónustu við landsmenn.
Eftir athöfnina að Haukagili var fjölkvennt á Blönduós til að heimsækja heimilisiðnaðarsafnið sem þar er en sú heimsókn er efni í annan pistil. Leiðin heim var svo hápúnktur ferðarinnar því veðrið var svo dásamlegt að því verður ekki með orðum lýst. Bílstjórinn komst svo að orði að hjartað fylltist stolti og ást á landinu við að horfa á alla þessa fegurð. Já, bara að við færum betur með þetta land sem við fengum í arf og eigum að skila af okkur óskemmdu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2007 | 15:17
Dómari missir starf sitt vegna vændiskaupa
Dagens Nyheter segir frá því í dag að dómari við undirrétt í Malmö hafi endanlega tapað máli sem hann höfðaði til að fá starf sitt til baka. Hann var handtekinn og skráður fyrir um það bil ári er lögreglan í Malmö réðist inn í vændishús þar í borg. Þar voru staddir um 60 karlmenn sem allir voru settir á skrá yfir vændiskaupendur. Kaup á vændi eru sem kunnugt er refsiverð í Svíaríki og sektum beitt ef menn eru staðnir að verki. Nú hefur dómstóll staðfest að hegðun dómarans hafi valdið honum slíkum álitshnekki og dregið svo úr trausti á honum að ekki sé réttlætanlegt að hann fái starf sitt til baka. Þetta er tímamótadómur.
Lögin um bann við kaupum á vændi eru að virka og eflaust verður þessi dómur mörgum karlinum viðvörun. Vonandi styttist í að við fáum sams konar lög hér á landi. Þau eru besta leiðin til að draga úr eftirspurn eftir kaupum á líkömum kvenna og barna. Þau voru sett vændiskaupendum og melludólgum til höfuðs. Svo er hin hliðin á málinu, það þarf að hjálpa þeim konum og börnum sem neyðast til að stunda vændi þannig að þau geti hafið nýtt líf, laus við eiturlyf og þvingarnir þess þrælalífs sem vændi er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.6.2007 | 13:07
Hvað varð um sumarið?
Þegar ég gekk sem leið lá úr Hlíðunum vestur í Háskóla í morgun var alveg ljóst að sumarið var farið í frí í bili. Norðan gjóla, mun kaldari en undanfarna daga olli því að ég hneppti að mér frakkann. Sumarið bíður þó í leyni. Í garði sem ég gekk fram hjá læddist kattaróféti um með grimmdarsvip og ætlaði sér greinilega að krækja í söngfugl. sem hoppaði á grein fyrir ofan hann. Runnar blómstra og ilma og unga fólkið hamast við að hreinsa borgina. Ekki veitir af.
Þegar ég gekk yfir göngubrúna og meðfram Hringbrautinni varð mér hugsað hvað Vatnsmýrin er óendanlega merkilegt fyrirbæri hér inni í miðri borg. Þar voru kríur í æfingaflugi, endur syntu á tjörnum og svartþrestir héldu fjölmennan félagsfund á grasbala. Það mætti þó vera snyrtilegra á þessari gönguleið því í síkjum og tjörnum er víða drasl á floti. Eins gott að hreinsunarflokkarnir fari að koma sér í Vatnsmýrina. Við verðum að hugsa vel um þessa gersemi í borgarlandinu og gæta þess að ganga ekki of nærri lífríkinu þar.
Já, sumarið tók sér frí í dag einmitt þegar ég er á leið út í sveit. Það verður smá kvennafundur á Suðurlandi, nánar tiltekið í Grímsnesinu, aðeins opinn boðsgestum. Á morgun held ég svo norður í land til að vera viðstödd afhjúpun minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur að Haukagili í Vatnsdal. Þangað eru allir velkomnir.
Í fyrra voru 150 ár liðin frá fæðingu Bríetar sem haldið var upp á með margvíslegum hætti. Meðal annars ákvað ríkisstjórnin að reisa minnisvarða um Bríeti sem vonandi verður afhjúpaður í haust á 151 árs afmæli hennar. Kvenréttindafélagið ákvað svo að reisa minnisvarða á fæðingarstað Bríetar í tilefni af 100 ára afmæli félagsins í ár og það er hann sem mun verða öllum sýnilegur frá og með morgundeginum.
Vonandi batnar veðrið fljótt svo að við þurfum ekki að norpa í norðangarra í Vatnsdalnum. Ekki voru fagrar lýsingar á ástandinu á Holtavörðuheiðinni í fréttunum áðan. En ég segi bara: Íslands konur hefjist handa. Ekki hefði Bríet látið kalda norðanvinda stöðva sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2007 | 19:10
Bókmenntir láta undan síga í fjölmiðlum
Lesbók Morgunblaðsins birti viðtal við Jón Kalman Stefánsson sl. laugardag þar sem rithöfundurinn fjallar um stöðu bókmenntanna og feril sinn. Að mínum dómi er Jón Kalman einn af allra bestu rithöfundum okkar og bók hans Sumarljós og svo kemur nóttin er með bestu bókum sem ég hef lesið árum saman. Hún er full af húmor og næmum mannlýsingum sögðum í stuttum sögum með rödd þorpsins.
Í greininni ræðir Jón Kalman um umfjöllun fjölmiðla um bókmenntir sem er öll að verða í skeytastíl eins og fólk þekkir úr Kastljósinu fyrir jól, þegar hver bók fær svona um það bil tvær mínútur og er síðan dæmd í hnotskurn. Næsta vetur ætlar ríkissjónvarpið að bæta um betur og mun Egill Helgason sjá um bókmenntaþátt og gerist þar með ekki bara stjórnandi álitsgjafanna "numero uno" heldur það sem á dönsku er kallað "smagsdommer" sem eru þeir sem stýra listasmekknum. Mikið vald í höndum eins karls. Ég er reyndar svo hundleið á þessum karlaþáttum hans og fleiri þáttastjórnenda að ég nenni ekki að horfa eða hlusta á þá en sem bókmenntaunnandi ætla ég að gefa honum sjéns.
Fyrir nokkrum vikum hlustaði ég á norska bókmenntafræðinginn og femnístann Toril Moi en hún er heimsþekkt innan sinnar fræðigreinar og hefur m.a. skrifað bók um Simone de Beauvoir. Hún var að líta yfir farinn veg á ráðstefnunni Past-Present-Future sem haldin var í Umeå eins og ég hef áður minnst á. Hún minnti á að þegar nýja kvennahreyfingin reis upp um 1970 bar mest á bókmenntum kvenna og kvennasögu í umræðunni, það var verið að gera konur sýnilegar með því að draga þær fram í dagsljósið og skoða birtingarmyndir þeirra í bókmenntunum. Núna eru bókmenntirnar nánast horfnar úr kynjafræðunum, sagði Moi og sagan líka bæti ég við.
Bókmenntir hafa ekki sama þunga í þjóðfélagsumræðunni og áður. Það á ekki aðeins við um kynjaumræðuna. Það sem vakti athygli mína og tengist viðtalinu við Jón Kalmann var að Toril Moi sagði að umfjöllun um bækur væri nánast að hverfa úr dagblöðum í Bandaríkjunum. Hún fer helst fram í sérblöðum og er hætt að vera hluti af daglegri menningarumfjöllun.
Þrátt fyrir mikla bókaútgáfu og alls konar metsölubækur virðast bókmenntir og þá einkum gæðabókmenntir, hvernig sem við svo skilgreinum þær, eiga í vök að verjast í fjölmiðlaheiminum sem þróast sífellt lengra í þá átt að pakka allt niður í 30 sekúndna skot eða örstutta pistla. Allt á að vera stutt og í hnotskurn. Það er bókmenntunum ekki til góðs. Eins og Toril Moi sagði, þá þurfum við að spyrja okkur hvers vegna við lesum skáldskap? Er það ekki af því að hann segir okkur eitthvað um okkur sjálf, náungann og samfélagið, eða snertir strengi í brjósti okkar? Við Íslendingar lesum enn mikið og er þá ástæða til að draga úr umfjöllun um þennan mikilvæga hluta menningar okkar? Hvaðan er þessi niðursuðuhugsun eiginlega komin og hverjum þjónar hún?
Nei, meiri bókmenntaumfjöllun, meiri umfjöllun um listir og hvers kyns menningarviðburði. Þúsundir á þúsundir ofan njóta menningarinnar og taka þátt í að skapa hana. Það er menningarlífið sem gefur dögunum lit og líf.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2007 | 13:21
Spennandi njósnakvendi
Ég hef lengi haft mikinn áhuga á millistríðsárunum og heimsstyrjöldinni síðari. Þetta var um margt mjög spennandi tími. Fyrst umbrot og uppgjör við ríkjandi gildi sem m.a. birtust í listum og "nýju konunni", síðan harðstjórn og hreinsanir Stalíns í Sovétríkjunum og uppgangur nasista og fastista í nokkrum ríkjum Evrópu sem leiddi til síðari heimsstyrjaldarinnar. Hvernig gat þetta gerst og það í Evrópu? Við þá spurningu hafa sagnfræðingar, félags- og sálfræðingar sem og aðrir fræðimenn glímt áratugum saman.
Í gærkvöldi sá ég brot af heimildamynd um sænsku söngkonuna Zarah Leander (1907-1981) en hún var einkar vinsæl í Þýskalandi á fjórða áratugnum og mjög hampað af nasistum. Hún var fráskilin tveggja barna móðir og hélt sig eins fjarri glaumi nasistalífsins og hún komst upp með. Hún er samt grunuð um að hafa stundað njósnir í Þýskalandi en ekki kemur fram í heimildum fyrir hvern. Ég fór sem sagt að lesa mér til um Zöru sem kom sér frá Þýskalandi 1943 þegar halla tók undan fæti hjá Þjóðverjum. Skýringin er m.a. sú að aðdáendur hennar og yfirvöld þrýstu á hana að gerast þýskur ríkisborgari en það vildi hún ekki. Ef satt er að hún hafi njósnað þurfti hún kannski að forða sér. Þótt Svíar hafi að mestu verið "hlutlausir" í styrjöldinni var heimkoman Zöru mjög erfið vegna þess orðspors sem af henni fór sem nasistasöngkonu.
Í kaflanum um Zöru var nefnd önnur kona sem ég ætla svo sannarlega að kynna mér betur. Það er Olga Chekhova (1897-1980) en hún var ein þekktasta og vinsælasta kvikmyndaleikkona þriðja ríkisins. Til eru myndir af henni við hlið Hitlers en hún var einkum í vinfengi við Göbbels áróðursmálaráðherra sem nefnir hana oft í dagbókum sínum (ég sá reyndar heimildamyndir um þær í vetur). Olga var Rússi af þýskum ættum, frænka leikskáldsins Anton Thekovs (eins og við skrifum nafnið oftast) og hún giftist frænda hans. Eftir að hún skildi hélt hún til Þýskalands þar sem hún náði miklum frama í kvikmyndum.
En viti menn. Hún njósnaði fyrir Sovétríkin. Það kom í ljós þegar skjalasöfn voru opnuð um sinn eftir fall Sovétríkjanna. Breski sagnfræðingurinn Antony Beevor hefur skrifað bók um hana sem heitir The Mystery of Olga Chekhova. Beevor var hér á ferð í vetur vegna útkomu bókar hans um Fall Berlínar og það er viðtal við hann í nýjasta hefti Sögu. Enn ein spennandi bókin sem ég verð að lesa.
Talið er að ástæðan fyrir því að Olga stundaði njósnir hafi fremur verið sú að hún var að verja fjölskyldu sína í Rússlandi fremur en af hollustu við ríki Stalíns. Bróðir hennar var í rússnesku leyniþjónustunni og réði hana til starfa. Það sýnir sterka stöðu hennar að hún var handtekin eftir fall Berlínar 1945 og flutt til Moskvu til yfirheyrslu en sleppt nokkrum dögum síðar og send aftur til Berlínar. Eftir styrjöldina féll nafn hennar að mestu í gleymsku og dá.
Þær eru margar sögurnar sem ekki hafa verið sagðar af konum fyrri tíma en nú er verið að draga þær fram í dagsljósið. Þessar tvær konur eru dæmi um frægar konur sem léku tveimur skjöldum þótt ekki sé alveg ljóst hvaða hlutverk Zarah Leander lék í sögu þriðja ríkisins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2007 | 19:53
Betl og hundsbit í miðbænum
Það var frábær dagur lengst af í dag. Bókmenntaklúbburinn minn hittist á Hótel Holti í hádeginu og þar snæddum við undurgóðan hádegisverð. Á eftir hélt hópurinn í bæinn utan ein sem var á leið í næsta partý. Það tókst að komast niður á Jómfrú án mikilla útgjalda en litið var inn í nokkrar búðir. Í portinu á bak við Jómfrúna voru jasstónleikar að vanda en þeir hefjast nú kl. 15.00 alla laugardaga. Þeir Erik Quick, Sigurður Flosason og félagar fluttu ljúfan djass. Eftir því sem ég best veit skipuleggur Sigurður Flosason sumartónleika Jómfrúarinnar og hann er algjör snillingur. Þvílíkur mússíkant.
Eftir að tónleikunum lauk rölti ég í bókabúðir og stefndi loks á ríkið í Austurstræti til að kaupa hvítvín. Á leiðinni varð ég enn einu sinni fyrir því að menn reyndu að betla af mér peninga. Fyrir nokkrum dögum var ég inni í apóteki á Laugaveginum þar sem náungi einn bað mig um peninga og ég er hreinlega alltaf að lenda í þessu í miðbænum. Annað hvort ég ég svona góðkvenleg eða ríkkvenleg. Ég verð oft við slíkum óskum en þetta fer mjög í taugarnar á mér. Betl er bannað og til skammar. Borgaryfirvöld verða að taka á þessu ástandi í miðbænum.
En þá er það lokahnykkurinn á deginum. Þegar ég kom út úr ríkinu heyrði ég sáran barnsgrát. Lítill drengur grét hátt í fangi föður síns og blóð lak úr nefi og munni. Hann hafði vikið sér að hundi sem var bundinn fyrir utan ríkið en hundurinn gerði sér lítið fyrir og beit hann í andlitið. Foreldrarnir voru í sjokki en ég og fleiri sem þarna voru sögðu þeim að koma sér á Slysavarðstofuna á stundinni. Pabbinn brá sér inn í anddyrið og spurði hver ætti hundinn en síðan hröðuðu foreldrarnir sér af stað, vonandi á leið beint upp á spítala.
Ég varð vitni að því þegar eigandi hundsins kom á spretti út úr ríkinu, losaði hundinn og hljóp í burtu. Ég hafði ekki vit á því að reyna að stoppa hann, hefði viljað hafa myndavél. Hann var á fertugsaldri, mundi ég halda, mjög ljós yfirlitum og á rauðum stuttbuxum. Hann hljóp af vettvangi en að mínum dómi á að lóga dýrum sem bregðast svona við. Ég veit ekki nákvæmlega hvað barnið gerði en ég get ekki ímyndað mér að litli drengurinn hafi gert nokkuð það sem réttlætti þessi viðbrögð hundsins. Börn eru yfirleitt hrifin af dýrum. Ég er enn í uppnámi en vona að litli drengurinn hafi ekki beðið mikinn skaða.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.6.2007 | 22:28
Fréttir af sænskum einkabréfum
Sagnfræðingar hafa lengi velt vöngum yfir heimildum um einkalíf fólks. Hvað er leyfilegt að birta eða nota, hversu langt má ganga í að túlka tilfinningar og frá hverju má segja? Þeir sagnfræðingar sem rannsaka dagbækur eða bréf, heimildir sem ekki voru ætlaðar öðrum en þeim sem skrifaði eða viðtakanda bréfs, verða að glíma við margar siðferðilegar spurningar. En hvernig á að bregðast við þegar eigendur bréfa taka sig til og birta þau, jafnvel þótt þau kunni að særa fjölskyldur viðkomandi eða valda nánast uppþoti. Hver á þá að spyrja siðferðilegra spurninga eða eru þær óþarfar?
Þessa dagana fjalla sænskir fjölmiðlar um ástarbréf tónskáldsins og vísnasöngvarans Evert Taube til konu að nafni Siv Seybolt. Á miðvikudag afhenti hún Gautaborgarháskóla 200 bréf sem Evert Taube skrifaði henni. Taube var sextugur þegar samband þeirra hófst upp úr 1950, Seybolt var þá 27 ára. Hann var giftur maður og átti börn og barnabörn.
Þeir sem þekkja til vísna og laga Evert Taube vita að hann orti gjarnan um alls konar konur ekki síst dömur í suðrænum höfnum, t.d. stúlkuna frá Havanna sem seldi sjómanninum blíðu sína fyrir rúbínhring eða þá hún Carmensíta sem vildi alls ekki giftast sænska sjóaranum. Þeim sem ekki vita hver Evert Taube er má segja að hann samdi t.d. lagið sem hér er sungið undir heitinu Vorkvöld í Reykjavík. Sven Bertil Taube sonur Everts sem er bæði frægur vísnasöngvari og leikari segir í viðtali að faðir sinn hafi dáð konur og ort um þær, vísurnar endurspegli platónska sýn skáldsins á konur fremur en ástarsambönd. Hann kannast ekki við að móðir sín hafi kvartað yfir framhjáhaldi.
Bréfin endurspegla heitt samband milli skáldsins/söngvarans og ungu konunnar. Þau ferðuðust saman og meðan Evert lá á spítala rigndi bréfunum yfir Siv. Í bunkanum fannst frumrit að einu laga Taube en þar var líka að finna bréf frá eiginkonunni sem bað Siv að skila ýmsum eigum Everts, t.d. hring. Hún vissi sem sagt af sambandinu.
Evert Taube er goðsögn. Hinir yndislegu söngvar hans munu lifa um aldir. Þess vegna vekja þessi bréf svona mikla athygli. Það er nú þegar byrjað að vinna úr þeim með útgáfu bókar í huga. Þegar fræga fólkið á í hlut er engum hlíft. Þá komast engar siðferðisspurningar að. Bréfin varpa án efa nýju ljósi á líf Evert Taube en það má spyrja hvort ekki hefði mátt bíða þar til lengra er liðið frá dauða hans (1976). Hvaða reglur eiga að gilda um svo persónulegar heimildir? Því er vandsvarað og hver á að svara því?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2007 | 21:38
Fréttir af sænska mýbitinu
Ég fékk margar samúðarkveðjur eftir að ég skrifaði pistilinn um sænska mýbitið. Það kannast margir við þennan fjanda og hafa ljótar sögur að segja. Bitið þróaðist þannig að ofnæmistöflurnar virkuðu og smátt og smátt dró úr bólgunni. Ég hélt á tímabili að ég væri komin með blóðeitrun svo ljótur var bletturinn kringum bitið en svo vaknaði ég næsta morgun og þá var blárauði liturinn svo til horfinn og núna lítur sárið út eins og mar.
Svona lýsingar eru ekkert spennandi lesning en það þarf að vara fólk við sem fer til Norðurlandanna á sumrin. Ég var að velta fyrir mér hvers konar fyrirbæri þetta er? Hvers konar eitur er það sem flugurnar spýta inn í mann og hvers vegna bregst ég og margir fleiri svona hart við. Eru Íslendingar eitthvað sérstaklega viðkvæmir fyrir mýbiti á norðurslóðum eða hvað? Ég býst við að þeir sem búa með kvikindunum öll sumar séu meira og minna ónæmir. Það væri gaman ef einhver gæti frætt mig um þetta.
Þegar ég vann á Balkanskaganum fyrir nokkrum árum var enginn skortur á moskítóflugum en þær eru greinilega af allt öðrum stofni. Bit þeirra ollu blöðrum og það gróf í þeim. Engar bólgur, í það minnsta ekki hjá mér. Þær eru hins vegar þekktar fyrir að bera alls konar pestir á milli manna t.d. malaríu. Nóg um mýbit að sinni. Íslenska sumarið bíður bjart og fagurt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2007 | 16:51
Svartur blettur á þjóðfélaginu
Viðar Eggertsson leikstjóra rak í rogastans er hann heyrði viðtal við mig að kvöldi 19. júní í fréttum ríkissjónvarpsins. Ég svaraði því til að mér fyndust niðurstöður könnunar HR á launamun kynjanna sem birtar voru fyrr um daginn ekki setja svartan blett á kvenréttindadaginn enda væri verið að staðfesta það sem við vissum áður. Viðar túlkar svar mitt sem svo að það sé í lagi að konur bjóði öðrum konum lægri laun en þær bjóða körlum eins og könnunin leiðir í ljós.
Að sjálfsögðu er það ekki í lagi. Og það er heldur ekki í lagi að karlar bjóði öðrum körlum enn hærri laun en þeir bjóða konum. Launamisréttið er óþolandi en það hefur verið staðfest í mörgum könnunum. Það er hluti af þjóðfélagsgerð okkar. Á þjóðveldisöld voru laun kvenna um helmingur af launum karla. Um aldamótin 1900 voru laun verkakvenna þriðjungur til helmingur af launum verkamanna. Nú hefur þó tekist að koma þessum mun upp í um það bil tvo þriðju af launum karla ef miðað er við meðallaun. Þó þokast allt, allt of hægt. Kynbundinn launamunur, þegar tekið hefur verið tillit til aldurs, menntunar og fleiri þátta er svo annað mál. Hann er talinn um 15% (Félagsmálaráðuneytið 2006) sem er mun hærri tala en hjá þeim löndum sem við miðum okkur helst við.
Ég skil ekki að fólk skuli vera undrandi á því að konur bjóði öðrum konum lægri laun en körlum eða ráðleggi þeim að biðja um lægri laun. Konur eru aldar upp í þessu þjóðfélagi kynjamismunar og við erum aldar upp í því að við og okkar störf séu minna virði en störf karla. Þau skilaboð berast úr öllum áttum, m.a. með þeirri staðreynd hve bráðnauðsynleg störf kvennastétta eru metin til lágra launa. Það kostar átak og breytt hugarfar að brjótast út úr þeim hugsunarhætti.
Franski félagsfræðingurinn Pierre Boudieu hefur sett fram kenningar um hvernig valdi er viðhaldið innan ákveðinna hópa. Þar leika menning, menntun, kyn, hefðir og tengslanet stórt hlutverk. Konur eru ekkert síður en karlar þátttakendur í að viðhalda því valdi sem hluti karla hefur yfir samfélaginu. Konur ráða líka yfir valdi, m.a. valdinu til að viðhalda óbreyttu ástandi. Með því að mótmæla ekki, með því að vera hlýðnar og góðar, með því að bíða og segja: þetta er allt að koma, með því að hafna aðgerðum til að jafna stöðu kynjanna, með því að neita því að kyn skipti máli, viðhalda konur ríkjandi ástandi.
Það þarf að breyta hugarfarinu og til þess þarf markvissar aðgerðir, allt frá því í leikskólum og upp úr. Það er á ábyrgð stjórnvalda að grípa til aðgerða en einstaklingarnir bera líka ábyrgð við að tryggja jöfn tækifæri kvenna og karla. Ef marka má nýjar rannsóknir er jafnréttisuppeldið sem svo mikil áhersla var lögð á upp úr 1970 nánast gleymt og grafið. Því yngri Íslendingar, því sterkari staðalmyndir af kynjunum.
Foreldrar, afar og ömmur, leikskólakennarar, kennarar, stjórnmálamenn, embættismenn, atvinnurekendur, launafólk og ekki síst baráttufólk, við berum öll ábyrgð á jafnrétti þegnanna. Launamisrétti kynjanna er svartur blettur á íslensku samfélagi ekki bara 19. júní heldur alla hina 364 dagana.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)